Fín veðurspá fyrir helgina, rallý á Dómadal og Tungnaá á - TopicsExpress



          

Fín veðurspá fyrir helgina, rallý á Dómadal og Tungnaá á laugardag, byrjar eftir hádegi, flottur laugardagsbíltúr með ágætu útsýni og hörkukeppni. Allir með og nokkrir alveg dýróðir, titlar í húfi og ekkert gefið eftir, nú verður fjör. Hvað skyldi Halldór Vilberg gera? Síðast valt hann. Hvað gerir Baldur Haralds? Hangir loftið í dekkjunum? Nær Bragi Þórðar og landa titli í 4x4 non turbo eða verður bílnum hent aftur út í skurð? Hvað með Henning? Verður hann meistari? Allt þetta, og mikið fleira sést með berum augum á laugardaginn, láttu sjá þig og baðaðu augun upp úr Íslensku ralli eins og það gerist best. Frekari upplýsingar og dagskrá má sjá á bikr.is
Posted on: Tue, 24 Sep 2013 18:18:25 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015