Sumaræfingarnar okkar eru komnar í fullan gang og hefur - TopicsExpress



          

Sumaræfingarnar okkar eru komnar í fullan gang og hefur iðkendum fjölgað jafnt og þétt. Veðrið hefur aðeins verið að stríða okkur fyrstu tvær vikurnar en nú stendur þetta allt til bóta. Sem fyrr eru kastgreinar einna mest stundaðar á þessum sumaræfingum okkar og hefur það líka verið áberandi á mótum og afrekaskrá Frjálsíþróttasambandsins hversu vel við stöndum að vígi í þeim greinum. Getum alveg bætt við okkur fleiri iðkendum svo það er um að gera að koma og reyna sig. Æfingar eru á mánudögum og fimmtudögum á svæðinu við Mjölhúsið. Krakkar fæddir 2001-2004 kl. 17.45 og eldri iðkendur kl. 18.15.
Posted on: Sat, 20 Jul 2013 21:50:09 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015