Framtíð ferðaþjónustu á Vestfjörðum -Suðureyri - TopicsExpress



          

Framtíð ferðaþjónustu á Vestfjörðum -Suðureyri Ráðstefnan Framtíð ferðaþjónustu á Vestfjörðum - verður haldin á morgun miðvikudaginn 13. nóvember 2013 kl. 10:30-17:00 í félagsheimili Suðureyrar. Á ráðstefnunni verða mörg fróðleg erindi og þar verður mótuð stefna til framtíðar í þessum málaflokki á Vestfjörðum. Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna hjá markaðsfulltrúa í netfanginu [email protected]. Ólöf Ýr Atladóttir ferðamálastjóri setur ráðstefnuna, en sérstakur gestur er Anders Stenbakken sem er framkvæmdastjóri Visit Greenland. Hann hefur unnið að ímyndar- uppbyggingu á ferðaþjónustu í Grænlandi undanfarin tíu ár. Anders hefur verið stjórnarformaður NATA (North Atlantic Tourism Association) frá árinu 2009. Sjá nánar meðfylgjandi vefslóð. fjordungssamband.is/frettir/Framtid_ferdathjonustu_a_Vestfjordum/
Posted on: Tue, 12 Nov 2013 17:29:18 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015