Góðan dag gott fólk. Ég er sko bara nýkomin á fætur já svo - TopicsExpress



          

Góðan dag gott fólk. Ég er sko bara nýkomin á fætur já svo bregðast krosstré sem önnur tré ég fór nefnilega ekki að sofa eftir að ég bauð góða nótt, ég datt sko aldeilis í sjónvarpið og horfði fram á rauða nótt alveg hörkumyndir og einhverntímann verður maður að sofa en það er bara allt í lagi, en það verður enginn göngutúr núna ætla að fara út eftir hádegi á opnun málverkasýnigar og kannski eitthvað meir og læt það duga í dag. Við Magga mín fórum í innkaupaleiðangur í gær fengum okkur smávegis að borða og höfðum það bara huggulegt. Finnst ykkur að ég ætti að fara að hægja á ? En dagurinn í gær fær auðvitað þrjá :) ;) :) Ekki nema staðar til að tína blómin til að láta þau lifa lengur hjá þér. Gakktu áfram og blómin munu lifa lengur og halda áfram að blómgast þar sem þau eru, meðfram allri leiðinni sem þú ferð. Í þessu felst yndi rósarinnar: Hún blómgast og er á brott. Klukkublóm við gluggann minn veitir mér meiri ánægju en háspeki í bókum. Geturðu eytt allsendis tilgangslausu síðdegi á aldeilis tilganslausan hátt hefurðu lært að lifa. Ekkert merkilegt verður til á stundinni, ekki frekar en vínberjaklasi eða fíkja. Ef þú segir þig langi í fíkju, svara ég því að þú verðir að bíða. Láttu tréð fyrst blómgast og bera ávöxt. Skapandi hugir hafa ævinlega verið þekktir af því að lifa af hvers konar vont uppeldi. ...Anna Freud ... Hugsaðu rangt ef þér sýnist svo, en flíkaðu umfram allt ekki hugsunum þínum. ...Doris Lessing ... Leggðu þig ekki í hættu. Þú ert það eina sem þú átt. ...Janis Joplin ... Við hugleiðum þetta í dag vinir mínir. Kærleikskveðjur til ykkar allra og njótið dagsins eftir bestu getu.
Posted on: Sat, 19 Oct 2013 10:21:19 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015