Road trip - dagur 2 Við lögðum af stað frá Kjarnaskógi um - TopicsExpress



          

Road trip - dagur 2 Við lögðum af stað frá Kjarnaskógi um hádegi og fyrsti áfangastaður var Akureyri þar sem við þurftum að byrgja okkur upp. Við ákváðum svo að vera ekkert að stressa okkur á leiðinni á Borgarfjörð því þetta er jú spurning um að njóta ferðalagsins ekki bara áfangarstaðarins, ekki satt? Þess vegna stoppuðum við í sundi á Laugum, fengum okkur að borða á Gamla bænum á Mývatni, kaffistopp hjá Dóru og Gestur sem voru í útilegu á Egilstöðum ásamt því að njóta ómældrar fegurðar sem fósturlandsins Freyja bauð okkur upp á. Eftir mjög taugatrekkjandi lokasprett yfir svalalegustu vegi sem ég hef ekið þá komum við á Borgarfjörð í mikilli þoku kl. eitt eftir miðnætti, tjölduðum og fengum okkur svo sushi og hvítvín til að halda upp á þetta allt saman :)
Posted on: Tue, 23 Jul 2013 10:46:14 +0000

Recently Viewed Topics




© 2015