Saga. Veiðistöngin! 5 Íslensk systkini eru stödd hjá presti, - TopicsExpress



          

Saga. Veiðistöngin! 5 Íslensk systkini eru stödd hjá presti, í lítilli kirkju fyrir norðan. Síðasta foreldrið er dáið. Jarðarfararundirbúningsfundur. "Hér verður engin jarðarför, nema þið segið mér hvað varð af veiðistönginni!" segir elsta systir, professor doctor komin alla leið frá Wisconsin. "Veiðistöng?" "Hva?" hva?" hva?" "Hvaaaað" spyr yngsti sonurinn, gangster frá Seyðisfirði. "Sko, mér var gefin þessi plast-veiðistöng, fór út á árbakkann okkar að veiða. Sofnaði. Er ég vaknaði var veiðistöngin horfin." "Og?" "Eitt ykkar hlýtur að hafa tekið hana! "Verði það ekki játað núna, verður engin jarðarför!!!." "Já, en þettta var fyrir 35 árum síðan. Það man þetta enginn." segir miðsystirin, félagsfræðingur í Svíþjóð. "Jú, víst!" Og svo framvegis.... En, stundum hef ég óskað þess að ég hefði ekki tekið þessa veiðistöng. Þessa fjandans veiðistöng.!!!
Posted on: Wed, 21 Aug 2013 02:19:03 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015