Segi enn - allt fer einhvern veginn, og stundum ekki eftir plani. - TopicsExpress



          

Segi enn - allt fer einhvern veginn, og stundum ekki eftir plani. Komin heim heldur fyrr en áætlað var. Fólk vildi sigla, en það bara gaf aldrei, hvorki til Bolungarvíkur, né Reykjarfjarðar. Veðurguðir ekki í alveg réttu skapi þessa daga, sem og marga aðra þetta sumarið. Þó var reynt að fara í gærmorgun, en snúið við eftir alltof stutta en þrælskemmtilega siglingu (er svo heppin að vera ekki sjóveik, og þá er þetta gaman ;) Áttum samt góða og skemmtilega daga í Norðurfirði, - gengum slatta, skoðuðum margt áhugavert s.s Kistuvog, Grænlandssteininn, Kört, Ingólfsfjörð, Hvalá ... tjölduðum ekki neitt, borðuðum og nutum heilmikið, sváfum bara svona í hrotukór ;) - nutum samveru, hlógum ... og hlógum meira :) - en þetta var alveg til að vekja upp hungrið! Er að spá í Bjarnar- eða Bláfell í vikunni ef veður leyfir ...
Posted on: Sun, 07 Jul 2013 18:26:59 +0000

© 2015