Sunnlenska.is - 12.09.2013: Afkoma lundans í Reynisfjalli og - TopicsExpress



          

Sunnlenska.is - 12.09.2013: Afkoma lundans í Reynisfjalli og Dyrhólaey virðist vera betri í sumar en búist var við. Eitthvað af pysjum hefur komist á legg því nokkrar hafa sést á ferli í Víkurþorpi í Mýrdal. Pysjurnar eru sprækar og vel útlítandi. Fyrr í sumar greindi sunnlenska.is frá því að ekki hafi einn einasti kríuungi komist upp í kríuvarpinu í Vík. Ungarnir voru ýmist étnir af mávum eða drápust úr hungri. Sandsíli er aðalfæða kríunnar og lundans og höfðu fuglaáhugamenn í Vík áhyggjur af lundavarpinu þar sem kríunni tókst ekki að koma upp ungum. sunnlenska.is/frettir/12918.html
Posted on: Fri, 13 Sep 2013 04:27:50 +0000

Recently Viewed Topics




© 2015