Sálmarnir 82 82 Asafs-sálmur. Guð stendur á guðaþingi, - TopicsExpress



          

Sálmarnir 82 82 Asafs-sálmur. Guð stendur á guðaþingi, heldur dóm mitt á meðal guðanna: 2 "Hversu lengi ætlið þér að dæma með rangsleitni og draga taum hinna óguðlegu? [Sela] 3 Rekið réttar bágstaddra og föðurlausra, látið hinn þjáða og fátæka ná rétti sínum, 4 bjargið bágstöddum og snauðum, frelsið þá af hendi óguðlegra." 5 Þeir hafa eigi skyn né skilning, þeir ráfa í myrkri, allar undirstöður jarðarinnar riða. 6 Ég hefi sagt: "Þér eruð guðir og allir saman synir Hins hæsta, 7 en sannlega skuluð þér deyja sem menn, falla sem einn af höfðingjunum." 8 Rís upp, ó Guð, dæm þú jörðina, því að þú ert erfðahöfðingi yfir öllum þjóðum.
Posted on: Mon, 07 Oct 2013 04:47:16 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015