Ég ætla svo sannarlega að vona að þjóðin hafi horft á - TopicsExpress



          

Ég ætla svo sannarlega að vona að þjóðin hafi horft á Kastljós á rúv þar sem málefni geðheilbrigðis á Íslandi eru rædd, og þetta frábæra framtak Á allra vörum sem hafa hrundið af stað söfnun til að vekja þjóðina til meðvitundar um málefni geðfatlaðra á Íslandi. Það veit nefnilega enginn hver getur verið næstur. Geðsjúkdómar geta lagst á alla og hver sem er getur þurft að glíma við einhvers konar geðsjúkdóm á ævi sinni. Margir af mínu bestu vinum eru að glíma daglega við allskyns geðsjúkdóma og ég þori alveg að viðurkenna mínar geðraskanir sem gera vart við sig á hverjum degi, hver dagur er áskorun um að reyna að lifa af. Mér ætlar að takast að læra að lifa með þennan sjúkdóm og láta það ekki buga mig niður þó að einhver segi manni annað, og ég ætla mér að vinna í að bæta mig um ókomna framtíð þó brekkan geti verið svo ansi brött á köflum og allt virðist ætla að fara á vitlausan veg.
Posted on: Thu, 12 Sep 2013 21:15:11 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015