2000 manns var kastað út af atvinnuleysisskrá um síðustu - TopicsExpress



          

2000 manns var kastað út af atvinnuleysisskrá um síðustu áramót. Þá þögðu ljósvakamiðlar. 3000 manns verður kastað út af atvinnuleysisskrá um næstu áramót (skv. lögum og reglugerðum) Skyldu ljósvakamiðlar þegja þá enn eða munu þeir þá loksins vakna til samkenndar og samhygðar með bræðrum sínum og systrum? MESTA FURÐUVERKIÐ Á JÖRÐINNI Þú ert eins og sporðdreki, bróðir, lifir í þínu huglausa myrkri eins og sporðdreki. Þú ert eins og spörfugl, bróðir, alltaf á sífelldu flökti. Þú ert eins og skeldýr, bróðir, lokaður í skelinni, sjálfum þér sæll. Þú ert skelfilegur, bróðir, eins og munnur gígsins, útbrunninn. Ekki einn, ekki fimm, því miður, þú ert einn af milljónum. Þú ert eins og sauður, bróðir, flykkist í hjörðina, þegar smalinn hóar ykkur saman og hleypur svo fagnandi, jarmandi stoltur, beinustu leið til slátrunar. Þú hlýtur að skilja orð mín. Þú ert mesta furðuverkið á jörðinni, meira að segja furðulegri en fiskurinn sem sér ekki hafið fyrir dropunum. Kúgun valdhafanna er vegna þín, bróðir. Og ef hungrið, sárin og nagandi þreytan sækja okkur heim og við erum kramdir í spað, eins og berin í víni okkar, er það vegna þín, bróðir. Ég get varla fengið mig til að segja það, en mestu sökina – kæri bróðir - átt þú. N. Hikmet þýðing: Pétur Örn Björnsson
Posted on: Thu, 28 Nov 2013 17:07:54 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015