"Atvinnufíflið. Óneitanlega nokkuð kunnugleg skepna. Það er skepnan sú arna sem reisti allar blokkirnar, greiddi sér arð úr gjaldþrota félögum; gat ekki farið út í búð án þess að láta eignarhaldsfélag með fyndnu nafni borga – og fara á hausinn – hljóp hlæjandi frá skuldum sínum. Atvinnufíflið býr ekki til atvinnu heldur fíflar atvinnuvegina, skapar engin verðmæti en skáldar peninga á pappír. Atvinnufíflið er komið á hjólið með fimmhundruðustu kennitöluna, og farið að gíra sig upp. Við heyrum það langar leiðir: brumm brumm."
Posted on: Mon, 29 Jul 2013 13:00:07 +0000
Trending Topics
Recently Viewed Topics
© 2015