Skrítið kvöld elsku stelpan hennar mömmu sinnar Dagbjört - TopicsExpress



          

Skrítið kvöld elsku stelpan hennar mömmu sinnar Dagbjört Kristín Helgadóttir sefur síðustu nóttina hér áður en hún heldur með Jonna sínum í heimsreisuna ! Verð algjörlega að viðurkenna það að ég er að fá smá kvíða panic kast ! En þau eru sem sagt að skreppa smá til Dubai, Singapore, Tælands, Indonesíu, Malasíu, Ástralíu, Nýja Sjálands, Fiji, L.A. og enda í New York takk kærlega !!! Verða í 11.vikur! Held að stelpan sé orðin pínu þreytt á mér og finnst ég hafa óþarfar áhyggjur en þau eru líka að fara á brimbrettanámskeið, synda með höfrungum og í FALLHLÍFARSTÖKK ! Hún keypti geggjaðan 70.lítra bakpoka og ætli hann verði ekki 10 kíló í mestalagi á leið út, það er minna í honum en töskunni minni sem ég fer með bara í bústað : ) En þetta eru skynsamir krakkar og þau vita að ef ég er ekki búin að heyra í þeim í 2.daga verð ég búin að hringja í Interpool og er það ekki síðan utanríkisráðuneitið? Ofboðslega er erfitt að sleppa hendinni að þessum börnum sínum en góða ferð elsku fiðrildin mín og farið varlega, passið hvort annað, verið dugleg að borða, verið með piparúða, ekki týnast, ekki tala við ókunnuga ...uuu nei það er erfitt, ekki týna símunum, og númer 1, 2, og 3 hafið það alveg undursamlega skemmtilegt elskurnar mínar : ) Gomma af ást til ykkar ♥♥♥
Posted on: Fri, 06 Sep 2013 23:34:08 +0000

Recently Viewed Topics




© 2015