Um 70 manns munu gista í fjöldahjálparstöðinni í Hofgarði - TopicsExpress



          

Um 70 manns munu gista í fjöldahjálparstöðinni í Hofgarði í Öræfum í nótt. Um er að ræða ferðalanga sem björgunarsveitir sóttu á Skeiðarársand í kvöld sem og þá sem höfðu komið sér sjálfir í skjól í Freysnesi. Hafði fólkið lent í grjótfoki og eru margir bílar illa farnir, rúður jafnvel brotnar auk þess sem hurðir fuku upp. Brynvarinn bíll Björgunarsveitarinnar Kára í Öræfum var notaður til að sækja fólkið. Hann er nú á leið í Jökulsárlón og á Skeiðarársand til að athuga hvort fleiri ferðamenn þarfnist aðstoðar. Í vesturhluta Mýrdals hefur verið aftakaveður í kvöld. Björgunarsveitin Víkverji frá Vík hefur haft í nógu að snúast við að hefta fok. Við bæina frá Pétursey og vestur úr hefur orðið nokkurt tjón á útihúsum en íbúðarhús hafa sloppið hingað til. Sem dæmi um veðurofsann þá fauk stór vörubíll sem notaður er til malarflutninga á hliðina á bæjarhlaðinu við Pétursey. Gert er ráð fyrir að veðrið í Mýrdalnum sé nú í hámarki en verði þó viðvarandi slæmt í nótt. Útköllum björgunarsveita á öðrum landsvæðum hefur fækkað eftir því sem liðið hefur á kvöldið. Þó var sveitin á Akranesi kölluð út á ellefta tímanum vegna þaks sem var að fjúka og Húnar á Hvammstanga eru á leið á Kjöl að sækja fastan bíl. Þar er nú afar slæm færð og mikill krapi á vegum.
Posted on: Mon, 16 Sep 2013 00:20:56 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015