Við pabbi vorum ögn að glingra við steina í gær, steina af - TopicsExpress



          

Við pabbi vorum ögn að glingra við steina í gær, steina af öllum gerðum og stærðum sem við höfum verið að safna síðustu 30 árin eða svo. Og svo rákumst við á nokkur stærðarinnar hvalbein sem við vorum búnir að stein gleyma.......Af hverju ætli það kallist að, STEIN gleyma? Hefur einhver rannsakað steina með það fyrir augum að komast að því hvort þeir hafi heila og hugsun? Já, eða bara heila hugsun, eða þannig. En alla vega við fundum margt sem við vorum bara búnir að gleyma og var gaman að því. Sko, það var ekki gaman að við værum búnir að gleyma, heldur að finna það gleymda. Þið vitið hvernig það er að segja karlmanni leyndarmál, það fer inn um annað eyrað og út um hitt. En að segja konu leyndarmál, þá fer það inn um bæði eyrun og út um munninn. Og nú kemur stóra trúðabrosið til ykkar og munið að hafa gaman og brosið. Hafa gaman!
Posted on: Fri, 15 Nov 2013 03:15:57 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015