Ástandið er vægt til orða tekið skelfilegt !!! Ég spyr enn - TopicsExpress



          

Ástandið er vægt til orða tekið skelfilegt !!! Ég spyr enn og aftur hvenær ætlar ríkisstjórnin að stöðva nauðungarsölur .................... "Í vikunni bárust fréttir af manni sem var birt útburðarbeiðni fyrir hádegi sem framfylgt var eftir hádegi sama dag. Í vikunni bárust fréttir af manni sem í 3 ár hefur leitað samninga hjá viðskiftabanka sínum um að kaupa aftur sitt eigið hús.Útburðarkrafa á hann verður tekin fyrir nk. föstudag. Í dag bárust fréttir af manni sem missti húsið sitt á vafasömu uppboði fyrir rúmu ári síðan. Rányrkjan er afstaðin og nú rukkar ræninginn fyrir kostnað með gjaldþrotakröfuvegna ólöglegs gengisláns.Ennþá bíða þessi lán endurútreikninga og hver unninn dómur virðist kalla á fleiri "til fordæmis".Hversu lengi ætla Íslendingar að horfa uppá þetta og afsaka þessa gjörninga með setningum eins og "hann/hún getur sjálfum/sjálfri sér um kennt","voru menn ekki bara að reisa sér hurðarás um öxl","menn verða nú að borga skuldir sínar"o.s.frv.Hvar er okkar samhugur og samfélagsvitund.Í alvörunni er enginn að sjá að röðin kann að koma að ykkur meðan beðið er eftir efndum loforðaflaums núverandi valdhafa,því græðgi fjármálafyrirtækjanna á sér engin takmörk.HVENÆR ER KOMIÐ NÓG."
Posted on: Sat, 29 Jun 2013 10:41:32 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015