Allir hafa syngað og skortir Guðs dýrð, og þeir réttlætast - TopicsExpress



          

Allir hafa syngað og skortir Guðs dýrð, og þeir réttlætast án verðskuldunar af náð hans fyrir endurlausnina, sem er í Kristi Jesú. Róm 3:23-24 Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Jón 3:16-17 Guð sendi ekki soninn í heiminn til að dæma heiminn, heldur að heimurinn skyldi frelsast fyrir hann. Sá sem trúir á hann, dæmist ekki. Sá sem trúir ekki, er þegar dæmdur, því að hann hefur ekki trúað á nafn Guðs sonarins eina. En þessi er dómurinn: Ljósið er komið í heiminn, en menn elskuðu myrkrið fremur en ljósið, því að verk þeirra voru vond. Hver sem illt gjörir hatar ljósið og kemur ekki til ljóssins, svo að verk hans verði ekki uppvís. En sá sem iðkar sannleikann kemur til ljóssins, svo að augljóst verði, að verk hans eru í Guði gjörð." Jóh 3:18-21 Þetta er boðskaður Hátíðar Vonar og boðskapur Biblíunnar.
Posted on: Sun, 29 Sep 2013 15:19:12 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015