Að gefnu tilefni vil stjórn Vöku árétta - TopicsExpress



          

Að gefnu tilefni vil stjórn Vöku árétta eftirfarandi: Stjórn Vöku hefur ekki farið á mis við fréttaflutning varðandi nýja stjórn LÍN og tekur undir sjónarmið Röskvu að vissu leyti. Á sama tíma treystum við því að menntamálaráðherra hafi vandað til verka við skipun stjórnarmanna LÍN og valið þar til setu einstaklinga sem hafa hagsmuni stúdenta að leiðarljósi. Mikilvægast þykir okkur að stjórnarmenn LÍN séu tilbúnir til þess að vinna með stúdentum að þeim endur- og viðbótum, á lánasjóðskerfinu, sem við stúdentar höfum beitt okkur fyrir. Að svo stöddu höfum við ekki ástæðu til að ætlast annars en að þeir hafi fullan hug á því. Að lokum leggjum við mikla áherslu á að fulltrúar stúdenta í stjórn LÍN tryggi að ólík sjónarmið fái að njóta sín og heilbrigð skoðanaskipti verði í forgrunni. Stjórn Vöku mun ekki senda frá sér sérstaka tilkynningu um málefnið fyrr en það hefur verið rætt til hlítar á okkar vettvangi og stjórn Vöku hefur rætt við fulltrúa allra hagsmunaaðila.
Posted on: Thu, 20 Jun 2013 14:53:17 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015