Franklin Graham er tíðrætt um syndina. Hann talaði mikið um - TopicsExpress



          

Franklin Graham er tíðrætt um syndina. Hann talaði mikið um syndina í Kastljósi í gærkveldi og í Mbl viðtali í dag virðist syndin vera megin kjarninn í hans boðskap. Orðið kemur fyrir a.m.k. 15 sinnum í ólíkum myndum. Syndin er ekki aðal atriðið í boðskap Jesú Krists. Jesú Kristur leggur mikla áherslu á manngildið. Franklin Graham kemur ekki til landsins í kristilegri auðmýkt. Hann telur sig sjálfan sendiboða hins eina sanna guðs, hann einn virðist hafa lausnina á okkar syndavanda og það byggir hann á sinni einstrengislegu bókstafs biblíutúlkun. Stutt er síðan fjölmiðlar birtu viðtal við íslamskan trúarleiðtoga í íslenskri mosku hér í Reykjavík, þar sem finna mátti sömu bókstafstrúna og sömu fordómana en trúarritið var Kóraninn og hinni eini sanni guð var Allah. Skaðlega bókstafstrú er að finna í flestum trúarbrögðum. Bókstafstrú virðir ekki mannréttindi. Í nafni bókstafstrúar hefur víða verið traðkað á mannréttindum og saklausu blóði úthelt. Bókstafstrúarmenn koma óorði á Guð. Í mínum huga eru mannréttindi æðri allri einstrengislegri bókstafsdýrkun og trúar kreddum. Og þar er kærleikans Guð að finna. Djassmessa í Fríkirkjunni í Reykjavík Sunnudagskvöldið 29. september kl. 20 Vonin fellst í víðsýni. Friðarstund án fordóma. Hugljúf kvöldstund með ljúfum jazztónum við kertaljós og hugleiðingu. Sönghópur Fríkirkjunnar leiðir sönginn ásamt djasstríói skipuðu þeim Ásgeiri Ásgeirssyni á gítar, Tómasi R. Einarssyni á kontrabassa og Gunnari Gunnarssyni á píanó. Allir hjartanlega velkomnir. Athugið: Engin guðsþjónusta verður kl.14 þennan dag.
Posted on: Sat, 28 Sep 2013 15:24:33 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015