Góðan og blessaðan daginn kæru vinir. Mikið er talað um - TopicsExpress



          

Góðan og blessaðan daginn kæru vinir. Mikið er talað um nauðsyn þess að viðhalda líkamlegu hreysti, hreyfa sig og fara í ræktina . Vissulega er það af hinu góða. En það er ekki síður mikilvægt að leggja áherslu á að viðhalda andlegu heilbrigði , rækta sálina. Nú er að skella á skammdegið, smum finnst það gott aðrir verða daprir og niðurdregnir í skammdeginu.Fordómar og vanþekking á þunglyndi eru því miður allt of algengir. Hve oft heyrum við ekki setningar eins og hann er bar bilaður eða hún er bara taugaveilkuð? Það er engin uppgerð þegar fólki líður illa andlega.Ég kynntist því vel í mínu starfi hve mikilvægt það er að missa aldrei móðinn, tapa ekki voninni, sökkva sér ekki niður í svartnættið.Við skulum muna að það eru ekki allir færir um að takast á við lífið og að sá tími sem nú fer í hönd getur verið mörgum erfiður.Verum á varðbergi og verum tilbúin til þess að rétta hjálparhönd til þeirra sem eiga í vanda með að takast á við þunglyndi og vonleysi .Gerum það sem við getum til þess að létta samferðamönnum okkar tilveruna.Njótið dagsins og helgarinnar farmundan og miðlið gleði og bjartsýni inn í líf þeirra sem á vegi ykkar verða.Það skilar sér til baka í betri líðan til okkar sjálfra.
Posted on: Fri, 01 Nov 2013 08:43:23 +0000

Trending Topics



le="min-height:30px;">
*Lemon a day keeps Cancer away* Just cut 2-3 thin slices of

Recently Viewed Topics




© 2015