Hér er lýst vinnubrögðum og pólitík tepokahreyfingarinnar í - TopicsExpress



          

Hér er lýst vinnubrögðum og pólitík tepokahreyfingarinnar í Bandaríkjunum og hvernig hægt er að eyðileggja heilt samfélag á örskömmum tíma. Þetta eru vinir Sjálfstæðisflokksins, enda lýst heilbrigðisráðherra því yfir í Speglinum í gærkvöldi að auka ætti kostnað sjúklinga í heilbrigðiskerfinu og stefna að meiri einkavæðingu. Hann orðaði það þannig að "ef fólk vill fá þessa þjónustu" eins og um frjálsan vilja væri að ræða þegar fólk veikist. Það er síðan dæmigert að lesa viðbrögð Óðins Þórissonar, öfgamanns innan Sjálfstæðisflokksins, við gagnrýni annarra í athugasemdum, en hann segir: "Vinstri - liðið greynilega enn hrikalega svekkt :)". Eins og það sé sérstakt svekkelsi vinstri manna að lesa um, og jafnvel upplifa á eigin skinni, eyðileggingu menntastofnana, afnám mannréttinda, skert aðgengi að kjörstöðum og fleira. Þvílíkt rugl!
Posted on: Sat, 13 Jul 2013 12:18:45 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015