Mig dreymdi svo illa í nótt, tvisvar dreymdi mig snjóflóð úr - TopicsExpress



          

Mig dreymdi svo illa í nótt, tvisvar dreymdi mig snjóflóð úr Bjófinum, í fyrraskiptið komu stórir kögglar veltandi niður hlíðina og ég og fleiri hlupum úteftir frá húsinu hans pabba og ég var svo örg við Vilborgu vinkonu því að hún hægði á sér til að spekulera af hverju það var svona mikið af brúnum og ljósbrúnum öndum á ánni og af hverju það var svona mikið vatn í ánni Ég var líka að hugsa að það væri ekki gott ef þetta kæmi þegar að Siggi væri sofandi eftir næturvakt og væri ekki í sokkum. Þá vaknaði ég við að Smári var kominn með verki í síðuna og svo eftir að við komum heim og ég sofnuð þá dreymdi mig aftur snjóflóð sem kom úr Bjófinum bæði úr Jókugilinu og Fálkagilinu og bókstaflega allur snjór úr fjallinu var að koma niður og ég var að reyna að komast undan því. Mér finnst vont að fá þessar martraðir um snjóflóðin.
Posted on: Thu, 22 Aug 2013 13:23:34 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015