Mætti flottum landsbyggðarstrætó á Moldhaugnahálsinum í - TopicsExpress



          

Mætti flottum landsbyggðarstrætó á Moldhaugnahálsinum í gær. Á skiltinu efst í framrúðunni sá ég ekki betur en stæði "1 Guangzhou". Fyrst hélt ég að þetta væri merki um hve almenningssamgöngur væru orðnar framúrskarandi góðar á Íslandi, en svo rann upp fyrir mér annað ljós: Landnemar hafa lengi tíðkað að nefna smábæi eftir stórborgum í sínu heimalandi, sbr. London í Ontaríó; París í Texas; Róm í Drottningarlandi. Nú hefur náttlega loksins hrokkið allt í gang hjá Íslandsvininum Huang og við erum búin að fá okkar eigin Guangzhou á Hólsfjöllum.
Posted on: Fri, 12 Jul 2013 21:23:44 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015