Nú er rétt um ár liðið frá því við í Annríki lukum við - TopicsExpress



          

Nú er rétt um ár liðið frá því við í Annríki lukum við þetta skemmtilega verkefni og margt hefur drifið á daga okkar síðan. Fjölbreytt verkefni hafa verið hér í vinnslu bæði nýsaumur og breytingar. Fjöldi námskeiða hafa verið haldin frá hausti 2012 sem hefur verið sérstaklega ánægjulegt. Við höfum tekið þátt í fjölda kynninga síðasta árið og fjöldi gesta hefur sótt okkur heim til að skoða búninga og fræðast. Þá höfum við átt afar gott samstarf við Hafnarfjarðarbæ og boðið upp á búningakynningar bæði í Gúttó og Pakkhúsinu. Síðast en ekki síst er Ási orðinn gullsmiður, frábær áfangi eftir fjögurra ára nám. Við lítum sannarlega björtum augum á framtíðina og hlökkum til samstarfsins við ykkur.
Posted on: Thu, 06 Jun 2013 23:33:43 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015