Stór og mikill kvenmaður, í ermalausum sumarkjól gekk inn á - TopicsExpress



          

Stór og mikill kvenmaður, í ermalausum sumarkjól gekk inn á bar. Hún lyfti hægri handleggnum hátt upp, svo kafloðinn handarkrikinn blasti við, - benti yfir þéttsetinn barinn og spurði: "Er hér einhver karlmaður sem vill bjóða konu í glas?" Það sló þögn á mannskapinn, sem reyndi að leiða brussuganginn í henni hjá sér. Lítill sjóari, kófdrukkin og glaseygður sem sat við enda barborðsins, sló í borðið og hrópaði: "Gefðu ballerínunni í glas" Barþjónninn hellti í glasið og skessan þambaði úr því. Hún sneri sér aftur að gestunum og með sama gassaganginum glennti hún loðinn handarkrikann framan í þá og spurði: "Er hér einhver karlmaður sem vill bjóða konu í glas?" Aftur var það litli, fulli sjóarinn sem skellti peningum á barborðið og sagði "Gefðu ballerínunni aftur í glas" Barþjónnin gekk til hans og sagði: Heyrðu kallinn minn - það er þitt mál ef þú vilt borga vínið fyrir kjellinguna, - en af hverju kallarðu hana alltaf ballerínu ? "Ég fullyrði", svaraði fulli sjóarinn - "að kona sem getur lyft fætinum svona hátt, hljóti að vera ballerína"
Posted on: Wed, 28 Aug 2013 21:56:14 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015