Tilkynning hér varðandi Keflavík Music Festival. Við þetta - TopicsExpress



          

Tilkynning hér varðandi Keflavík Music Festival. Við þetta langar mig að bæta að mér þykir það mótlæti sem hátíðin hefur orðið fyrir ekki sanngjarnt að öllu leyti og leiðinlegt að sjá hvernig hlakkar í sumu fólki yfir mistökum annarra. Ég vil einnig benda hljómsveitum á að ganga frá almennilegum samningum við festivöl sem þau bóka sig á. Ég veit fyrir víst að aðeins voru um 5 hljómsveitir sem áttu samning um fyrirframgreiðslu á hátíðinni en samt voru ýmsir sem heimtuðu fyrirframgreiðslu með dags fyrirvara og hættu svo við þegar aðstandendur gátu skiljanlega ekki brugðist við þeirri kröfu. Þrátt fyrir þetta er samskipta og skipulagsleysi aðstandenda óásættanlegt og vona ég að miðaeigendur sýni hljómsveitum sem hafa dregið sig út skilning.
Posted on: Sat, 08 Jun 2013 14:56:18 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015