Þrjár fjölskyldur bornar út af heimilum sínum á hverjum degi - TopicsExpress



          

Þrjár fjölskyldur bornar út af heimilum sínum á hverjum degi í tíð núverandi ríkisstjórnar....... Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins hélt ræðu hinn 10 september síðastliðinn eftir munnlega skýrslu forsætisráðherra um störf ríkisstjórnarinnar: Þar sagði þessi þingmaður ríkisstjórnaflokks Framsóknar m.a. þessi sönnu orð: "Virðulegur forseti. Við höfum orðið vitni að áhugaverðum orðaskiptum hér í dag og það sem hefur vakið sérstaka athygli er óþolinmæði stjórnarandstöðunnar. Hér erum við í mörgum tilvikum að tala um fólk sem sat við stjórnvölinn í heil fjögur ár undir kjörorðinu „sláum skjaldborg um heimilin“. Það verður að segjast eins og er að málflutningurinn verður holur og í raun dapurlegur þegar haft er í huga að á degi hverjum í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar voru að meðaltali þrjár fjölskyldur bornar út af heimilum sínum, þrjár á dag, háttvirtu þingmenn." Ég vil sem formaður Hagsmunaamtaka heimilanna minna þingmanninn Karl Garðarsson og alla aðra þingmenn og konurnar á að frá því að ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðismanna tók við eru ennþá þrjár fjölskyldur á dag bornar út af heimilum sínuim, þrjár fjölskyldur á dag. Ég og við í Hagsmunasamtökum heimilanna höfum verið að reyna að fá ykkur þingmenn og ráðherra til að sjá að það gengur ekki að þremur fjölskyldum sé hent út á degi hverjum. Hvernig má það vera að þið getið horft upp á að á meðan beðið er boðaðra aðgerða ykkar sjálfra, muni þrjár fjölskyldur á dag missa heimili sín sem mundu hugsanlega geta bjargast ef og þegar boðaðar aðgerðir ykkar koma til framkvæmda í haust. Ef þið trúið ekki sjálfir á það sem þið eru búnir að setja fram um lausnir handa heimilunum, hvernig getið þið þá ætlast til að við trúum því. Ég skal trúa ykkur og ríkisstjórninni um að þið ætlið að gera eitthvað fyrir heimili landsins ef þið stöðvið nauðungarsölur og gjaldþrot STRAX núna á septemberþinginu. Með þessu er ég að hvetja þessa ríkisstjórn til að gera eitthvað í þessum málum strax og sannanlega er ég ekki að mæra seinustu ríkisstjórn sem stóð sig engan veginn fyrir heimili landsins.
Posted on: Sun, 15 Sep 2013 23:54:20 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015