Þá er 11 sept. runninn upp og margs að minnast. Mamma heitin, - TopicsExpress



          

Þá er 11 sept. runninn upp og margs að minnast. Mamma heitin, Gunna í Æðey oftast kölluð, hefði orðið 95 ára í dag. Blessuð sé minning hennar. Við Bára fórum til USA 2.mán. eftir árásina á Turnana og komum þar að sem þeir eitt sinn stóðu.Einnig fórum við að staðnum þar sem vélinni var stýrt í jörðina í Sommerset county en það er rétt hjá þar sem ég var á hamskera námskeiði 1997 í Stoystown í Pennsylv. Var að setja keðjusög saman sem á að nýtast við að snyrta trén og eins að vera viðbúinn að fækka greinum ef aftur kemur viðlíka kvellur og um daginn. Nú koma varnaðarorðin á færibandi:Launafólk verður að koma með hófstilltar kröfur svo að sjoppan fari ekki á hausinn,en á sama tíma er allt orðið eins og 2007,mér er orðið flökurt og hættur að lesa blöðin því mér finnst ég hafa færst aftur á bak en fékk mér þó stærri bréfalúgu til að taka við feita tékkanum sem kemur innan tíðar að sögn. Gott í bili.
Posted on: Wed, 11 Sep 2013 22:40:18 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015