Bóndinn á fylleríi! Davíð kom skröltandi heim til sín - TopicsExpress



          

Bóndinn á fylleríi! Davíð kom skröltandi heim til sín klukkan hálffjögur að nóttu eftir að hafa verið úti á krá með félögum sínum. Hann fór úr skónum til að vekja ekki Katrínu konuna sína. Hann læddist hljóðlega að stiganum, sem lá upp í svefnherbergið, en tók ekki eftir síðustu tröppunni og datt um hana. Sem betur fer náði hann taki á handriðinu en datt beint á rassinn. Við fallið brotnuðu tvær viskýflöskur sem hann geymdi í rassvösunum og sársaukinn minnkaði ekki við glerbrotin. Hann náði þó að halda aftur af öskrinu. Hann stóð upp, girti buxurnar niður um sig og leit í spegilinn. Í speglinum sá hann að það blæddi úr báðum rasskinnunum. Hann fann sér því fullan kassa af plástrum og reyndi eins og hann gat að hylja sárin með plástrum. Eftir að hafa næstum því tæmt plástrakassann skjögraði hann inn í svefnherbergi og lagðist í rúmið. Um morguninn vaknaði hann við sársaukann og að Katrín horfði á hann. Þú hefur verið á fylleríi eina ferðina enn, er það ekki? Af hverju spyrðu? Nú, Það gæti verið opna útidyrahurðin. Það gætu verið glerbrotin efst í tröppunum. Það gæti verið slóðin af blóðdropum um allt húsið. Það gætu verið blóðhlaupin augun í þér. – en það sem vakti mestu grunsemdirnar hjá mér eru allir plástrarnir á speglinum!
Posted on: Thu, 12 Sep 2013 21:23:20 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015