This is The End í kvöld kl.20.00 ;-) fær 7.9 á IMDB Ekkert - TopicsExpress



          

This is The End í kvöld kl.20.00 ;-) fær 7.9 á IMDB Ekkert eyðileggur gott partý eins og heimsendir! Frá höfundum Superbad og Pineapple Express kemur villt gamanmynd þar sem margar af stærstu stjörnum samtímans fara á kostum, sýna á sér nýjar og óvæntar hliðar og gera óspart grín að sjálfum sér og Hollywod. Seth Rogen, Jay Baruchel, Jonah Hill, Danny McBride, Michael Cera, Emma Watson og fleiri stjörnur eru að skemmta sér áhyggjulausar í svaka partíi heima hjá James Franco. Eftir röð hrikalegra atburða sem lama Los Angeles lokast gestirnir inni í húsinu og gera sitt besta þar til að verjast hamförunum sem skekja veröldina ytra. Á meðan heimurinn liðast í sundur fyrir utan verður hópurinn fyrir innan að takast á við innilokunarbrjálæði og þverrandi birgðir. Aðstæðurnar valda sundrung í hópnum en á endanum neyðast þau til að yfirgefa húsið og mæta örlögum sínum ytra - og þá fyrst reynir á vinskapinn.
Posted on: Sat, 13 Jul 2013 10:15:30 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015