Óboj! Var að lenda heima í hosíló aftur eftir stórbrotna - TopicsExpress



          

Óboj! Var að lenda heima í hosíló aftur eftir stórbrotna Mærudaga- og útgáfutónleikahelgi hálfvita á Húsavík þar sem ég slökkti á internetinu. Og mín bíða á fjórða hundrað ólesinna afmæliskveðja. Takk fyrir þær allar elsku vinir og allan óvæntan söng og faðmlög á rölti mínu um bæinn ... takk Húsvíkingar fyrir upplifunina ... takk tónleikagestir fyrir komuna og aldeilis stórskemmtilegt kvöld ... takk veðurguðir fyrir alla þessa fáránlegu gjafmildi á afmælisdaginn og alla helgina ... takk Elinborg og Þorvaldur fyrir gistinguna og höfðinglegar móttökur ... mér líður svolítið eins og ég hafi óverdósað af fegurð lífsins og Húsavíkur þessa helgi ... (leiðinlegt að sjá svo í fjölmiðlum aðeins fréttir af svörtu sauðunum, vitleysingunum sem kunna ekki að drekka eða skemmta sér án þess að lemja fólk, en þannig virka víst fréttamiðlar). Eins og þeir segja í Ammríkunni ... þetta var osom!
Posted on: Mon, 29 Jul 2013 00:50:12 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015