Anna Helga fann Alladín-lampa liggjandi í fjörunni. Hún tók - TopicsExpress



          

Anna Helga fann Alladín-lampa liggjandi í fjörunni. Hún tók hann upp, pússaði hann og hvað haldið þið? Út úr lampanum steig andi. Furðu lostin konan spurði hvort hún fengi þrjár óskir uppfylltar. Andinn svaraði: Neeei--- vegna verðbólgu, stöðugs samdráttar, lágra launa í löndum þriðja heimsins og heiftarlegrar samkeppni um allan heim, get ég aðeins veitt þér eina ósk og hvers óskar þú þér nú? Án þess að hika sagði Anna: ég óska friðar í Mið-austurlöðndum. Sérðu þetta kort? Ég vil að þessi lönd hætti að berjast hvert við annað.... Andinn leit á kortið og hrópaði: VVVVVaaaááááá, er ekki í lagi með þig manneskja! Þessi lönd hafa átt í stríði í þúsundir ára. Ég bý yfir miklum mætti, en svona rosalega máttugur er ég ekki! Ég held að þetta sé ekki framkvæmanlegt, þú verður að óska þér einhvers annars. Anna Helga hugsaði sig um augnablik og sagði svo: Okey, ég hef aldrei getað fundið rétta manninn, þú veist: sem er tillitsamur, skemmtilegur, finnst gaman að elda, hjálpar til við að þrífa húsið, er góður í rúminu, semur við fjölskyldu mína, er ekki alltaf að horfa á íþróttirnar og er mér trúr. Já, það sem ég óska mér : Góður maður ! Andinn gaf frá sér langt andvarp og sagði: Láttu mig sjá þetta fjandans kort..
Posted on: Sat, 28 Sep 2013 22:24:28 +0000

Trending Topics




© 2015