Hér er nýjasta kontaktbeiðnin sem mér hefur borist via SKYPE. - TopicsExpress



          

Hér er nýjasta kontaktbeiðnin sem mér hefur borist via SKYPE. Hún er einkar athyglisverð fyrir þær sakir að þar er vísað í prófílmynd þó ég hafi ekki sett inn neina prófílmynd af mér: "Enter a message to introduce yourself.Hello am jack periton Am a single father and i am an assistant to the united states Ambassador to Syria and was interested in you after going through your profile and picture you are a pretty lady that every man will like to be him mrs right your beauty swept me off my feet i will like to know lets chat so you can tell me about your self we can make a good friend" Maðurinn er áreiðanlega grunlaus um að það var brotist inn á reikninginn minn og sett inn m.a. mynd af nágrannakonu minni sem á við andleg veikindi að stríða (undir mínu nafni). Ég breytti þá nafninu mínu en hef ekki komist inn á prófílinn í nokkra mánuði til að skoða hann - en hann virðist hafa mikið aðdráttarafl fyrir karla á miðjum aldri. Ég get heldur ekki notað reikninginn þrátt fyrir að hafa greitt inn á hann og SKYPE skuldar mér nú u.þ.b. ISK 3200. Engin svör bárust frá SKYPE þegar ég sendi fyrirspurn með útskýringum. Ég er þess fullviss að þetta er hluti af því skítlega einelti sem ég hef þurft að þola frá aðkomu minni að rýnifundum samninganefndar landbúnaðarráðuneytisins og ESB 2010-2011 af hálfu íslenskra einstaklinga ýmissa og sem ég hef sagt frá á fésbókarsíðunni minni, og var raunar hvatinn að því að ég hóf fésbókarskrif enda fokið í önnur skjól eftir viðbragðaleysi yfirvalda þegar ég leitaði til þeirra.
Posted on: Sat, 24 Aug 2013 23:18:10 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015