Skóladagur liðinn.... búin að finna fullt af samtölum, - TopicsExpress



          

Skóladagur liðinn.... búin að finna fullt af samtölum, útauka og innauka, debit og kredit og allskonar meir, af svona reiknis systkinum. Ég sé ekki stjörnur eftir þennan dag heldur bara tölur hér og þar, leit í spegil og sá sjöur í augunum á mér, ótrúlegt hvað ég er meðvirk í þesum tölum. Ástandið var aðeins skárra en verra í dag, búið að tæma munninn af aukahlutum en troða þeim í nefið í staðinn, ég hef aftur fengið koss en engin orð eru sögð enn. Lúllið mitt sé ég í hyllingum og stefni þangað fljótlega, segi bara takk fyrir daginn tölur og fólk, knús á ykkur kæru vinir og góða nótt
Posted on: Mon, 07 Oct 2013 23:16:01 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015