Það var sko nóg að brasa hjá okkur pabba í gær og það - TopicsExpress



          

Það var sko nóg að brasa hjá okkur pabba í gær og það mest bara inni við heima, enda var nú veðrið þannig að maður sóttist nú ekkert sérstaklega eftir því að vera utandyra. En það var gaman hjá okkur í því sem við bardúsuðum, við gerðum pínulítið við eitt og annað og svo var áframhald á sultutilraunum og eru þær að takast alveg sérstaklega skemmtilega. T. d. berjasultan með kanilnum sem við gerðum í fyrragær, er bara alveg frábær og allt öðruvísi en aðrar sultur. Vá, hvað hún er góð, hún verður sko fljót að klárast ef ég fæ einhverju ráðið um það, en auðvitað stjórna pabbi flestu svoleiðis. Já, alveg rétt, ég hitti vélritunnar stúlku í innbænum fyrir helgina og varð hálf hissa, því að hún var með tvíbura í kerru, ég sem vissi ekki einu sinni að hún hefði verið ófrísk. Ég spurði, átt þú þá? Já, já, sagði hún. Vá! Tvíbura? Æi já, sagði hún, ég er svo vön að taka allt í tvíriti. Og nú kemur stóra trúðabrosið til ykkar og ekki gleyma að hafa gaman hjá ykkur og endilega brosið. Hafa gaman!
Posted on: Wed, 18 Sep 2013 02:24:48 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015