Komandi heim frá Akureyri eftir konunglega skemmtun fann ég að - TopicsExpress



          

Komandi heim frá Akureyri eftir konunglega skemmtun fann ég að eitthvað vantaði.... Jú næringu... Ég sé Doritos poka þvælast um búrið heima og greip hann. Sósulaust Doritos var óánægt þannig að ég bjó til OstaKokteilsósu í örbylgjuofninum... Góð hugmynd. Sáttur með mig röllti ég niður í herbergi, til í þetta mönns! Nema hvað... Ég leggst upp í rúm, kampakátur og velti sjóðheitri sósunni yfir mig allann... Sá þá ekkert í stöðunni nema að lepja hana upp eins og hungraður flækingsköttur. Jú, sósan var góð en djöfull var hún heit. Jæja, eftir grimmt lepj ákvað ég að þurrka rest og batt miklar vonir við fá ekki brunasár. Ég var bænheyrður!!! En eitthvað vantaði þó! Kókómjólkin! Ég arka upp með miklar vonir um ískalda kókómjólk í kælinum. NeiNei, þá sjaldan sem hún er ekki til þá hitti þetta þannig á. Ég er nú ekki á flæðiskeri staddur. Ég hendi í eitt lauflétt nesquick og læt gott heita. Í sömu andrá og ég kem niður, sáttur með NesquickBlönduna er sósan orðin harður ostur, útataður í kokteilsósu. Uppi sit ég með Harðostasósu, Nesquick og þó snakk sem bragðast ágætlega án alls þessa. Nú verður troðið!! Gleðilegann verslunarmannaDag! P.s. Ef einhver veit um símann minn, má hinn sami láta vita (Y)
Posted on: Mon, 05 Aug 2013 05:38:23 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015