Ég get ekki á mér setið og endurtek hér athugasemd Andrésar - TopicsExpress



          

Ég get ekki á mér setið og endurtek hér athugasemd Andrésar Andréssonar orð fyrir orð. RÚV- menn ættu að lesa þetta: „Málfrelsi og gangrýni á fjórða valdið (fjölmiðla) er "ruddaskapur" segir fyrrverandi fallisti í varaformannskjöri Samfylkingarinnar. Ég man ekki eftir að Heimir Már eða aðrir úr fjölmiðlaflóru vinstrisins á Íslandi hafi gripið til varna þegar Jóhanna Sig., Steingrímur J. og fleiri handhafar framkvæmdarvaldsins héldu uppi linnulausum árásum á eina borgaralega fjölmiðil landsins. Ólíkt RÚV, sem er almenningsfjölmiðill, þá hefur hefur Morgunblaðið engum skyldum að gegna þegar kemur að hlutleysi. Þegar eigendur RÚV, almenningur, kvartar undan vinstrislagsíðu, lýðræðishalla og ESB sjónarhorn í frétta- og þáttagerð þá er krafist þöggunar, svívirðingum ausið yfir venjulegt fólk sem lætur sig málin varða. Ofsafengin viðbrögð vinstrimanna eru sönnun þess hvað mikið er í húfi fyrir þá“.
Posted on: Wed, 21 Aug 2013 17:00:06 +0000

Trending Topics



Recently Viewed Topics




© 2015